Samstarfssamningur Icelandair og Air India greiðir fyrir ferðalögum og viðskiptum

Icelandair og Air India hafa undirritað samstarfssamning um sammerkt flug (code share). Mað samningnum munu opnast öflugar og þægilegar tengingar á milli Íslands og Indlands um sameiginlega áfangastaði flugfélaganna í Evrópu, að því er segir í tilkynningu frá Icelandair.

Þar kemur fram að með samn­ingn­um verði hægt að ferðast í einni bók­un frá Íslandi til Nýju Delí með teng­ingu í Amster­dam, Par­ís, Kaup­manna­höfn, Frankfurt eða London Heathrow og til Mumbai með teng­ingu í Frankfurt eða London Heathrow. Bogi Nils Boga­son, for­stjóri Icelanda­ir, og Camp­bell Wil­son, for­stjóri Air India, und­ir­rituðu samn­ing­inn á aðal­fundi IATA, Alþjóðasam­taka flug­fé­laga, sem fram fer í Nýju Delí.

Gert er ráð fyr­ir að samn­ing­ur­inn taki gildi á næstu vik­um þegar samþykki op­in­berra aðila ligg­ur fyr­ir og þá munu viðskipta­vin­ir geta bókað tengiflug á milli leiðakerfa flug­fé­lag­anna í ein­um miða með far­ang­ur­inn inn­ritaðan alla leið á loka­áfangastað.

„Þessi nýi sam­starfs­samn­ing­ur við Air India mark­ar mik­il­væg tíma­mót og opn­ar góðar teng­ing­ar úr leiðakerfi okk­ar í Norður-Am­er­íku og Evr­ópu til og frá Indlandi. Þannig verður auðveld­ara fyr­ir viðskipta­vini Icelanda­ir að ferðast til Ind­lands og sömu­leiðis viðskipta­vini Air India að ferðast til Íslands. Við höf­um lagt áherslu á að efla alþjóðaleiðakerfið okk­ar með sam­starfs­samn­ing­um við flug­fé­lög sem leggja áherslu á góða þjón­ustu og spenn­andi ferðamögu­leika og það ger­ir Air India svo sann­ar­lega,“ er haft eft­ir Boga Nils í til­kynn­ing­unni.

„Það er mjög ánægju­legt að hefja sam­starf við Icelanda­ir og bjóða viðskipta­vin­um okk­ar upp á þægi­leg­ar leiðir til þess að upp­lifa nátt­úru og menn­ingu Íslands. Einnig erum við spennt fyr­ir því að kynna viðskipta­vini Icelanda­ir fyr­ir spenn­andi áfanga­stöðum á Indlandi. Samn­ing­ur­inn end­ur­spegl­ar mark­mið okk­ar um að efla alþjóðlegt leiðakerfi okk­ar og teng­ing­ar á milli Ind­lands og vax­andi ferðamarkaða eins og Íslands,“ seg­ir Camp­bell Wil­son, for­stjóri Air India, í sömu tilkynningu.

Báðir forstjórarnir segjast vissir um að samningurinn muni efla bæði ferðalög og viðskipti milli landanna.

Scroll to Top