Hampiðjan hefur gengið endanlega frá kaupum á um 75% hlut á indverska fyrirtækinu Kohinoor, sem er einn stærsti framleiðandi neta og kaðla á Indlandi með ársframleiðslu á um 14.300 tonnum af köðlum og netum. Samkvæmt tilkynningu til Kauphallarinnar eru starfsmenn fyrirtækisins rúmlega 700 og starfsstöðvarnar þrjár, tvær neta- og kaðlaverksmiðjur í Selu og netaverkstæði í Jalna.
Flatarmál núverandi verksmiðjubygginga er tæplega 60.000 m2. Samanborið við starfsemi Hampiðjunnar í Litháen þá eru starfsmenn þar einnig um 700 og flatarmál bygginga um 45.500 m2. Í heild verða starfsmenn samstæðu Hampiðjunnar um 2.700 eftir kaupin á meirihlutaeignarhlut í Kohinoor.
Þessa dagana er unnið að kaupum á landi á Indlandi til frekari uppbyggingar og stefnt er að því að byrja byggingaframkvæmdir í vor og ljúka fyrsta áfanga um áramótin. Stjórnvöld hafa gefið vilyrði fyrir 12 hektara landi í iðnaðarhverfinu Auric sem er um 20 km austur af Aurangabad en í þeirri borg búa um 1,7 milljón manns. Á því landi verður hægt að byggja 60-70.000 m² að grunnfleti og þar eru allir innviðir til staðar; rafmagn, vatn, nettenging, frárennsliskerfi og malbikaðir vegir með tvöföldum akreinum í báðar áttir. Um 4 km norðar er tenging inn á hraðbrautina til Mumbai en akstur þangað mun taka um 3,5 tíma þegar brautin verður að fullu opnuð á næsta ári.
Starfsemi færð frá Noregi, Póllandi og Litháen til Indlands
Í tilkynningu Hampiðjunnar kemur fram að fyrstu skrefin hafi þegar verið tekin í flutningi véla og framleiðslu frá Litháen til Indlands og er fyrsta kaðlavélin þegar í flutningi og önnur bíður flutnings. Nú sé háannatími í framleiðslu fiskeldiskvía og efni í þær og þegar háannatímanum ljúki seint í sumar verði byrjað á að flytja 4 vefstóla sem framleiða hnútalaust net frá Noregi til Kohinoor. Samhliða þvi verði sérhæfðar saumavélar og annar búnaður fluttur frá Póllandi og Litháen til Indlands.
„Framundan eru því spennandi tímar þar sem fer saman uppbygging á Indlandi og tilflutningur framleiðslu fiskeldiskvía frá að hluta frá Noregi, Póllandi og Litháen yfir til Indlands samhliða því að dregið verður úr framleiðslu fiskeldiskvía í þeim löndum en þessum breytingum fylgir mikil hagræðing vegna hagstæðara starfsumhverfis á Indlandi,“ segir í tilkynningu Hampiðjunnar.