Hringborðsumræður með ráðuneytisstjóra indverska viðskiptaráðuneytisins

Íslensk-indverska viðskiptaráðið efnir til hringborðsumræðna íslenskra fyrirtækja með ráðuneytisstjóra indverska viðskiptaráðuneytisins, Sunil Barthwal, mánudaginn 23. júní kl. 14. Til umræðu eru viðskipti Íslands og Indlands og þau miklu tækifæri sem felast í fríverslunar- og efnahagssamstarfssamningi EFTA og Indlands (TEPA).

Barthwal ráðuneytisstjóri er staddur hér á landi til viðræðna við stjórnvöld en hefur jafnframt mikinn áhuga á að hitta fólk úr íslensku viðskiptalífi og ræða möguleikana á auknum viðskiptum og efnahagssamstarfi Íslands og Indlands. Hér gefst einstakt tækifæri fyrir stjórnendur fyrirtækja að ræða milliliðalaust við hátt settan fulltrúa stjórnvalda á Indlandi.

Bala Kamallakharan, formaður Íslensk-indverska viðskiptaráðsins, stýrir umræðunum. R. Ravindra, sendiherra Indlands á Íslandi, tekur jafnframt þátt.

Fundurinn fer fram í húsnæði Félags atvinnurekenda í Skeifunni 11b, 3. hæð (gengið inn á milli Zo-on og Lyfju á 1. hæð). Kaffiveitingar í boði.

Skráning á viðburðinn er hér að neðan.

This field is required.
This field is required.
Scroll to Top