Sendiráð Indlands í Reykjavík stendur fyrir vinnustofu til að kynna fjárfestingar- og samstarfstækifæri í sjávarútvegsgeiranum, 19. janúar næstkomandi kl. 11-12.30. Vinnustofan verður haldin á Vox Club, Hótel Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2, 108 Reykjavík.
Á dagskrá verða kynningar á sjávarútvegsgeiranum á Indlandi og þeim fjárfestingartækifærum og stefnum sem honum tengjast. Viðburðinum lýkur með léttum veitingum.
Hagsmunaaðilar eru vinsamlegast beðnir um að skrá sig með því að nota tengilinn hér að neðan. Einnig má nota QR-kóðann á myndinni að neðan.
Boðskort verða send til skráðra hagsmunaaðila.




