Greining á tækifærum sem TEPA skapar útflytjendum sjávarafurða

Íslenska sendiráðið í Nýju Delí hefur birt greiningu alþjóðlega ráðgjafarfyrirtækisins T&A Consulting á þeim tækifærum, sem viðskipta- og efnahagssamstarfssamningur EFTA og Indlands (TEPA) skapar íslenskum útflytjendum sjávarafurða. Hægt er að lesa skjalið hér að neðan.

Í greiningunni er farið yfir markað fyrir sjávarafurðir á Indlandi og einstaka geira hans. Fjallað er sérstaklega um markað fyrir Norður-Atlantshafs-fisktegundir eins og lax, þorsk, ýsu og lúðu, markað fyrir skelfisk og fyrir unnar, virðisaukandi sjávarafurðir. Þá er gerð góð grein fyrir tímalínu tollalækkana í TEPA-samningnum.

Scroll to Top