Íslensk-indverska viðskiptaráðið, Indversk-íslensku viðskiptasamtökin (IIBA) Íslandsstofa og sendiráð Indlands á Íslandi efna til íslensk-indversks viðskiptaþings á Grand Hótel Reykjavík 3. mars næstkomandi kl. 13.30 – 17.
Tilefnið er heimsókn fjölmennrar viðskiptasendinefndar á vegum IIBA (Indo Icelandic Business Association), dagana 2.-7. mars.
Dagskráin verður kynnt síðar, en við hvetjum áhugafólk um viðskipti Íslands og Indlands til að taka tímann frá og skrá þátttöku hér að neðan.



