Íslensk-indverska viðskiptaráðið, Indversk-íslensku viðskiptasamtökin (IIBA) Íslandsstofa og sendiráð Indlands á Íslandi efna til íslensk-indversks viðskiptaþings á Grand Hótel Reykjavík 3. mars næstkomandi kl. 13.30 – 17. Þingið verður haldið á ensku. Skráning er hér að neðan.
Tilefnið er heimsókn fjölmennrar viðskiptasendinefndar á vegum IIBA (Indo Icelandic Business Association), dagana 2.-7. mars. Nánari upplýsingar um fyrirtækin í sendinefndinni eru hér neðar á síðunni.
Á málþinginu verður lögð sérstök áhersla á umfjöllun um viðskipta- og efnahagssamstarfssamning EFTA og Indlands (TEPA) sem tók gildi á síðasta ári og þau tækifæri sem hann opnar í viðskiptum Íslands og Indlands, ekki síst á sviði sjávarútvegs, endurnýjanlegrar orku og nýsköpunar.
Á þinginu gefst gott tækifæri til að hitta forsvarsmenn indverskra fyrirtækja og nýta kaffihléin í spjall og tengslamyndun.
PROGRAMME
1:30 to 2 PM Introductions
R. Ravindra, Ambassador of India to Iceland
Sveinn K. Einarsson, Director, Directorate of Foreign Trade and Economic Affairs, Icelandic Ministry for Foreign Affairs
2 – 2:15 PM Coffee Break
2:15 – 3 PM Session 1 (Trade and Economic relations)
Alexandra Leeper, CEO, Icelandic Ocean Cluster
Prasoon Dewan, Chairman, Indo-Icelandic Business Association
3 – 3:15 PM Coffee Break
3:15 – 4 PM Session 2 (Geothermal energy)
Haukur Már Haraldsson, Director of Business Development, Verkís
Mr. Saurabh Sharma – Founder & Director – Zypher Solutions
4-4:15 PM Coffee Break
4:15 – 5 PM Session 3 (Innovative technologies)
Sudeep Kumar, Founder and Director, Elevatoz Loyalty Solutions
Bala Kamallakharan, Chairman, Icelandic-Indian Trade Council and Founder, Startup Iceland



