Fjölsótt íslensk-indverskt viðskiptaþing – myndir og glærur

Íslensk-indverska viðskiptaráðið efndi til Íslensk-indversks viðskiptaþings á Grand Hóteli Reykjavík í gær, ásamt indverska sendiráðinu, Íslandsstofu og Indversk-íslensku viðskiptasamtökunum (Indo-Icelandic Business Association, IIBA), samstarfssamtökum ÍIV á Indlandi. Tilefnið var heimsókn fjölmennrar viðskiptasendinefndar á vegum IIBA til Íslands.

Halla Tómasdóttir forseti Íslands opnaði þingið, en að loknu opnunarávarpi hennar flutti Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra erindi. Logi er nýkominn úr heimsókn til Indlands, þar sem hann sótti fjölmennan leiðtogafund um gervigreind.

Aðrir ræðumenn voru Sveinn K. Einarsson, deildarstjóri viðskiptasamninga í utanríkisráðuneytinu, Anisha Tomar sendiráðsritari í sendiráði Indlands, Alexandra Leeper, forstjóri Íslenska sjávarklasans, Prasoon Dewan, formaður IIBA, Haukur Þór Haraldsson, viðskiptaþróunarstjóri hjá Verkís, Saurabh Sharma, stofnandi og forstjóri Zypher Solutions, Sudeep Kumar, stofnandi og forstjóri Elevatoz Loyalty Studios, og Bala Kamallakharan, formaður Íslensk-indverska viðskiptaráðsins. Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda og ÍIV, stýrði þinginu. Glærur nokkurra frummælenda má nálgast hér að neðan. Hér eru einnig myndir frá viðburðinum.

Glærur Anishu Tomar
Glærur Alexöndru Leeper
Glærur Prasoons Dewan
Glærur Hauks Þór Haraldssonar
Glærur Saurabh Sharma
Glærur Sudeep Kumar

Scroll to Top