Út er komin ný greining á þeim tækifærum sem viðskipta- og efnahagssamstarfssamningur EFTA og Indlands (TEPA) skapar fyrir íslensk fyrirtæki í heilbrigðis- og lækningatækni. Greiningin var unnin af T&A Consulting með stuðningi sendiráðs Íslands í Nýju Delí og Norrænu ráðherranefndarinnar.
Í skýrslunni kemur fram að Indland sé nú fjórði stærsti markaður Asíu fyrir lækningatæki og að eftirspurn eftir sérhæfðri tækni fari ört vaxandi. Sérstaklega eru talin mikil sóknarfæri fyrir íslensk fyrirtæki á sviði stoð- og hjálpartækja, líftæknilyfja, sárameðferðar, erfðagreininga og stafrænnar heilbrigðistækni.
Greiningin bendir jafnframt á að TEPA bæti markaðsaðgang á ýmsum sviðum, bæði með tollalækkunum og auknu aðgengi að þjónustumarkaði. Á sama tíma er lögð áhersla á að árangur muni ráðast af samstarfi við indverska aðila, reglufylgni og staðbundinni markaðsnálgun, enda séu stærstu tækifærin fremur samstarfsverkefni en hefðbundinn útflutningur fullunninna vara.
Greininguna má nálgast í heild hér að neðan, í lengri og styttri útgáfu.



