Íslensk-indverska viðskiptaráðið og sendiráð Indlands efna til viðburðar 14. september næstkomandi kl. 15, í aðdraganda annars leiðtogafundar EFTA og Indlands (Prosperity Summit), sem haldinn verður í Nýju Delí 7. október. Tilefnið er ársafmæli gildistöku viðskipta- og efnahagssamstarfssamnings Indlands og EFTA, sem verið hefur í gildi frá því 1. október í fyrra.
R. Ravindra, sendiherra Indlands á Íslandi, mun á viðburðinum fara yfir nokkur atriði um viðskipti Íslands og Indlands og þann árangur, sem þegar er farinn að sjást af TEPA-samningnum, auk þess að greina frá ýmsum nýjungum í stefnu indverskra stjórnvalda, sem greiða fyrir viðskiptum og erlendri fjárfestingu.
Chandrika Gunnarsson, nýr formaður ÍIV, mun einnig fjalla um sína sýn á viðskipti Íslands og Indlands og starf viðskiptaráðsins.
Að loknum stuttum inngangserindum verður boðið upp á léttar indverskar veitingar og félagsmönnum og öðrum gestum gefst færi á samræðum og tengslamyndun.
Viðburðurinn er haldinn í fundarsal Félags atvinnurekenda í Skeifunni 11B, 3. hæð (gengið inn á milli Zo-on og Lyfju á jarðhæð). Skráning á viðburðinn er hér að neðan.



