ASSOCHAM, Associated Chambers of Commerce and Industry of India.
ASSOCHAM, Associated Chambers of Commerce and Industry of India.
ASSOCHAM er regnhlífarsamtök viðskiptaráða og atvinnurekendasamtaka á Indlandi. Alls eiga um 300 samtök aðild að ASSOCHAM og þjóna þau samtals rúmlega 400 þúsund aðildarfyrirtækjum. ASSOCHAM er með samstarfssamning við Félag atvinnurekenda, sem rekur Íslensk-indverska viðskiptaráðið.
Fríverslunarsamningur EFTA og Indlands
Upplýsingasíða EFTA um fríverslunarsamning EFTA-ríkjanna og Indlands. Samningurinn var undirritaður 10. mars 2024 og gengur væntanlega í gildi í lok árs 2025.
Indo-Icelandic Business Association, IIBA
Indversk-íslensku viðskiptasamtökin, IIBA, var stofnað 2010 og hefur það hlutverk að styrkja og efla viðskipti, fjárfestingar og tvíhliða tengsl milli Íslands og Indlands. IIBA og ÍIV undirrituðu tvíhliða samstarfsyfirlýsingu árið 2019.
Invest India
Vefur indverskra stjórnvalda um fjárfestingar á Indlandi.
Invest India – stuðningur við fyrirtæki frá EFTA-ríkjunum
Upplýsingar um hjálparmiðstöð Invest India fyrir fyrirtæki frá EFTA-ríkjunum. Miðstöðin (EFTA Desk) var sett á fót í febrúar 2025 og mun aðstoða fyrirtæki við að fóta sig á indverska markaðnum.
Íslandsstofa
Útflutningsþjónusta Íslandsstofu hefur veitt fyrirtækjum sem leita viðskiptasambanda á Indlandi ýmsa þjónustu. Meðal annars hafa verið skipulagðar ferðir viðskiptasendinefnda til Indlands. Íslandsstofa er í samstarfi við Business Sweden, sem gerir íslenskum fyrirtækjum kleift að nýta sér yfirgripsmikla ráðgjaþjónustu við inngöngu og vöxt á erlendum mörkuðum.
Sendiráð Indlands í Reykjavík
Sendiráðið veitir fyrirtækjum sem hafa áhuga á Indlandsviðskiptum ýmsa aðstoð og upplýsingar.
Sendiráð Íslands í Nýju Delí
Sendiráð Íslands á Indlandi aðstoðar íslensk fyrirtæki. Þar er starfandi sérstakur viðskiptafulltrúi, Rahul Chongtam.