Greining á tækifærum til samstarfs í orkugeiranum

Á viðburði sendiráða Íslands og Noregs í vikunni var kynnt greining aþjóðlega ráðgjafarfyrirtækisins T&A Consulting á samstarfsmöguleikum Íslands og Indlands í orkugeiranum. Greininguna, sem unnin er fyrir Sendiráð Íslands í Nýju Delí, má lesa hér að neðan.

M.a. er farið yfir þau tækifæri sem viðskipta- og efnahagssamstarfssamningur EFTA og Indlands (TEPA) opnar. Í greiningunni er fjallað um orkuþörf indverska markaðarins og einstaka stöðu Íslands sem samstarfsríkis Indlands vegna þekkingar Íslendinga og reynslu af endurnýjanlegri orku. Farið er yfir ákvæði TEPA um viðskipti með þjónustu á borð við sérfræðiþjónustu í orkumálum, en samningurinn bætir mjög fyrirsjáanleika í þeim efnum. Yfirlit er um helstu áskoranir sem þarf að leysa úr og hvaða leiðir séu vænlegastar inn á indverska markaðinn.

Scroll to Top