Indverskt kaffi sjálfbært og margslungið

Tugir kaffiáhugamanna, þar á meðal fulltrúar nokkurra kaffiinnflytjenda, mættu á kynningu á indversku kaffi, sem indverska sendiráðið í Reykjavík og Kaffiráð Indlands stóðu fyrir á Hótel Hilton Nordica.

Sunil Barthwal, ráðuneytisstjóri indverska viðskiptaráðuneytisins, sem staddur er hér á landi, ávarpaði samkomuna og útskýrði að indverskt kaffi væri eitthvert það sjálfbærasta í heimi, ræktað með náttúrulegum aðferðum og allar baunir handtíndar. Konur taka ríkan þátt í vinnslunni. Indverjar horfa til þess að auka mjög útflutning á kaffi. Barthwal undirstrikaði að indverskt kaffi hefði sérstöðu, ekki bara vegna sjálfbærra ræktunar- og vinnsluaðferða, heldur einnig vegna margslungins bragðs.

Gestir voru leystir út með gjöfum og munu geta hellt upp á indverskt kaffi heima til að njóta þess sem skyldi.

Hér að neðan eru nokkrar myndir frá viðburðinum.

Scroll to Top