Kynning á indversku kaffi verður haldin á Hótel Hilton Reykjavík Nordica 23. júní kl. 11.30. Viðburðurinn er á vegum Sendiráðs Indlands og Kaffiráðs Indlands og er ætlunin meðal annars að kynna möguleika á innflutningi kaffis frá Indlandi.
Saga kaffiræktar á Indlandi nær allt aftur til 17. aldar. Indverskt kaffi er nú flutt út til landa víða um heim. Um það bil þrír fjórðuhlutar af kaffirækt á Indlandi er Arabica- og Robusta-baunir. Þær hafa einkum verið fluttar út óbrenndar en vaxandi eftirspurn er eftir brenndum baunum og skyndikaffi, sem hefur enn ýtt undir útflutning. Indland er nú sjöundi stærsti kaffiframleiðandi heims. Útflutningur á kaffi hefur tvöfaldast á undanförnum fjórum árum og nemur nú um 1,3 milljörðum Bandaríkjadala eða um 160 milljörðum íslenskra króna.
Kaffiráð Indlands (Coffee Board of India) hefur haft frumkvæði að ýmiss konar þróun í geiranum til að bæta uppskeru og framleiðni, færa kaffirækt til nýrra svæða, tryggja sjálfbærni framleiðslunnar og efla samkeppnishæfni indversks kaffis á heimsvísu.
Áhugasamir eru vinsamlega beðnir að skrá sig hjá sendiráðinu fyrir 20. júní með því að senda póst á netfangið hoc.reykjavik@mea.gov.in