Indverska sendiráðið, í samstarfi við útflutningsráð landbúnaðarvara á Indlandi (Agricultural and Processed Food Products Export Development Authority , APEDA) efnir til mangóhátíðar á Hótel Hilton Nordica miðvikudaginn 24 júní. Hátíðin verður opin almenningi frá kl. 16:00 til 18:00.
Indverskir mangóávextir eru rómaðir fyrir einstakan sætleika, ríkulegan ilm, skæra liti og fjölbreytt afbrigði. Indland er stærsti framleiðandi mangóa í heiminum og þar eru ræktuð yfir hundrað mismunandi afbrigði víðs vegar um landið. Indversk mangó eru þekkt fyrir sérstakt bragð og fjölbreytta áferð. Mangóið er gjarnan nefnt „konungur ávaxtanna“ og hefur djúpa menningarlega og sögulega þýðingu á Indlandi, þar sem það táknar velmegun, gnægð og hamingju.
Markmið hátíðarinnar er að kynna hina miklu fjölbreytni, einstaka bragðeiginleika og menningarlega þýðingu indverskra mangóa. Gestum gefst kostur á að smakka úrval fyrsta flokks mangóa frá ýmsum héruðum Indlands, þar á meðal þekkt afbrigði á borð við Alphonso, Kesar, Banganapalli og Dasheri.
Indversku mangóhátíðinni er ætlað að efla menningarleg tengsl Indlands og Íslands um leið og hún vekur athygli á framúrskarandi árangri Indlands í landbúnaði og ríkum matarhefðum landsins.



