Miklu meira en fríverslunarsamningur

Sunil Barthwal, ráðuneytisstjóri viðskiptaráðuneytis Indlands, segir að nýi fríverslunar- og efnahagssamstarfssamningur EFTA og Indlands (TEPA) sé miklu meira en venjulegur fríverslunarsamningur um tollfríðindi. Samningurinn fjalli um langtum víðtækara efnahagssamstarf Indlands og EFTA-ríkjanna, innihaldi nýstárleg ákvæði um fjárfestingarskuldbindingar EFTA-ríkja og á grundvelli hans muni fyrirtæki í EFTA-ríkjunum fá aðstoð frá indverskum stjórnvöldum og aðgengi að upplýsingum og gagnasöfnum, sem eigi sér enga hliðstæðu. Íslensk-indverska viðskiptaráðið og sendiráð Indlands efndu til líflegra hringborðsumræðna um viðskipti Íslands og Indlands með þátttöku Barthwals. Fulltrúar um 25 fyrirtækja úr ýmsum geirum viðskiptalífsins tóku þátt í viðburðinum, sem Bala Kamallakharan, formaður ÍIV, stýrði.

Barthwal sagði að tækifærin í viðskiptum Íslands og Indlands væru mikil. Á ýmsum sviðum byggi Ísland yfir tæknilegri sérþekkingu, en Indland hefði stærðina til að búa til ábatasaman markað fyrir lausnir byggðar á íslenskri tækni. Hann tiltók sérstaklega fjóra geira; kolefnisbindingu, endurnýjanlega orku, sjávarútveg og þjónustugeirann.

Þjónustumiðstöðin mun svara hratt og vel
Ráðuneytisstjóranum varð tíðrætt um þjónustumiðstöð fyrir fyrirtæki frá EFTA-ríkjunum (EFTA desk) sem verður opnuð í Nýju Delí í október, um leið og TEPA tekur gildi. Indversk stjórnvöld myndu leggja mikla vinnu og metnað í að þar fengju fyrirtæki svör við fyrirspurnum sínum og erindum, aðstoð við að finna viðskiptafélaga, aðgang að opinberum gagnasöfnum o.s.frv. Hann sagði að lögð yrði áhersla á skilvirka svörun og að fyrirtæki fengju svör við fyrirspurnum sínum fljótt og vel, í síðasta lagi um 25 dögum eftir að fyrirspurnir væru lagðar fram, en það færi eftir eðli málsins. Indversk stjórnvöld myndu hlusta náið eftir sjónarmiðum fyrirtækja í EFTA-ríkjunum varðandi starfsumhverfið og þann ramma sem stjórnvöld byggju fjárfestingum.

Barthwal greindi frá því að miðstöðin myndi reglulega mæla ánægju fjárfesta með þjónustuna og skila mánaðarlegum skýrslum um starfsemina, sem yrðu aðgengilegar hagaðilum í EFTA-ríkjunum.

Engar hömlur á erlendri fjárfestingu í sjávarútvegi
Í pallborðsumræðunum var meðal annars rætt um hvernig reynsla Íslands af fullnýtingu sjávarfangs gæti nýst Indlandi. Aðilar úr sjávarútveginum spurðu margs, meðal annars um eignarhald á fyrirtækjum í sjávarútvegi og aðgang að afurðum, sem unnar eru á Indlandi, að Asíumarkaði og Ástralíu. Barthwal útskýrði að engar hömlur væru á erlendu eignarhaldi í sjávarútvegsfyrirtækjum. Vörur, sem unnar væru á Indlandi, ættu greiða leið inn á markað í mörgum Asíuríkjum í gegnum fríverslunarsamninga Indlands. Indland stefndi nú að því að útvíkka mjög net fríverslunarsamninga víða um heim.

Mál ýmissa annarra atvinnugreina bar á góma í hringborðsumræðunum, til dæmis ferðaþjónustu og arkitektúrs og lista en Bharwal lagði áherslu á að mikil tækifæri væru fyrir fyrirtæki í þessum greinum á Indlandsmarkaði.

Hér að neðan eru myndir frá hringborðsumræðunum.

Scroll to Top