Icelandair og Air India hafa undirritað samstarfssamning um sammerkt flug (code share). Mað samningnum munu opnast öflugar og þægilegar tengingar á milli Íslands og Indlands um sameiginlega áfangastaði flugfélaganna í Evrópu, að því er segir í tilkynningu frá Icelandair.
Þar kemur fram að með samningnum verði hægt að ferðast í einni bókun frá Íslandi til Nýju Delí með tengingu í Amsterdam, París, Kaupmannahöfn, Frankfurt eða London Heathrow og til Mumbai með tengingu í Frankfurt eða London Heathrow. Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, og Campbell Wilson, forstjóri Air India, undirrituðu samninginn á aðalfundi IATA, Alþjóðasamtaka flugfélaga, sem fram fer í Nýju Delí.
Gert er ráð fyrir að samningurinn taki gildi á næstu vikum þegar samþykki opinberra aðila liggur fyrir og þá munu viðskiptavinir geta bókað tengiflug á milli leiðakerfa flugfélaganna í einum miða með farangurinn innritaðan alla leið á lokaáfangastað.
„Þessi nýi samstarfssamningur við Air India markar mikilvæg tímamót og opnar góðar tengingar úr leiðakerfi okkar í Norður-Ameríku og Evrópu til og frá Indlandi. Þannig verður auðveldara fyrir viðskiptavini Icelandair að ferðast til Indlands og sömuleiðis viðskiptavini Air India að ferðast til Íslands. Við höfum lagt áherslu á að efla alþjóðaleiðakerfið okkar með samstarfssamningum við flugfélög sem leggja áherslu á góða þjónustu og spennandi ferðamöguleika og það gerir Air India svo sannarlega,“ er haft eftir Boga Nils í tilkynningunni.
„Það er mjög ánægjulegt að hefja samstarf við Icelandair og bjóða viðskiptavinum okkar upp á þægilegar leiðir til þess að upplifa náttúru og menningu Íslands. Einnig erum við spennt fyrir því að kynna viðskiptavini Icelandair fyrir spennandi áfangastöðum á Indlandi. Samningurinn endurspeglar markmið okkar um að efla alþjóðlegt leiðakerfi okkar og tengingar á milli Indlands og vaxandi ferðamarkaða eins og Íslands,“ segir Campbell Wilson, forstjóri Air India, í sömu tilkynningu.
Báðir forstjórarnir segjast vissir um að samningurinn muni efla bæði ferðalög og viðskipti milli landanna.