Stjórn og framkvæmdastjóri Íslensk-indverska viðskiptaráðsins áttu góðan fund með Benedikt Höskuldssyni, sendiherra í Nýju Delí. Aðalumræðuefnið á fundinum var fríverslunarsamningur EFTA og Indlands, sem að öllu óbreyttu tekur gildi síðar á árinu. Samningurinn opnar ótal tækifæri í viðskiptum Íslands og Indlands og var rætt hvernig stuðla mætti að því að hann fengi sem besta kynningu, bæði á meðal íslenskra fyrirtækja og indverskra.
Á myndinni eru Benedikt sendiherra, Bala Kamallakharan formaður ÍIV og Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri, en aðrir stjórnarmenn voru í fjarfundarsambandi.
Stjórnir millilandaviðskiptaráða FA funda árlega með sendiherrum Íslands á viðkomandi markaðssvæðum, í samræmi við Samstarfsssamning FA og utanríkisráðuneytisins.