Íslensk-indverska viðskiptaráðið, Indversk-íslensku viðskiptasamtökin (IIBA) Íslandsstofa og sendiráð Indlands á Íslandi efna til íslensk-indversks viðskiptaþings á Grand Hótel Reykjavík 3. mars næstkomandi kl. 13.30 – 17.
Tilefnið er heimsókn fjölmennrar viðskiptasendinefndar á vegum IIBA (Indo Icelandic Business Association), dagana 2.-7. mars. Þingið verður haldið á ensku. Nánari upplýsingar um fyrirtækin í sendinefndinni eru hér neðar á síðunni.
Fyrstu drög að dagskrá eru eftirfarandi:
1:30 to 2 PM Introductions
2 – 2:15 PM Coffee Break
2:15 – 3 PM Session 1 (Trade and Economic relations)
3 – 3:15 PM Coffee Break
3:15 – 4 PM Session 2 (Geothermal energy)
4-4:15 PM Coffee Break
4:15 – 5 PM Session 3 (Innovative technologies)
Nákvæm dagskrá verður kynnt síðar, en við hvetjum áhugafólk um viðskipti Íslands og Indlands til að taka tímann frá og skrá þátttöku hér að neðan.



