Þjónustumiðstöð fyrir fyrirtæki í EFTA-ríkjunum opnuð í Nýju Delí

Indversk stjórnvöld hafa opnað þjónustumiðstöð (India-EFTA Desk) fyrir fyrirtæki frá EFTA-ríkjunum í Nýju Delí. Fjöldi hátt settra embættismanna og forystumanna fyrirtækja frá Indlandi og EFTA var viðstaddur formlega opnun miðstöðvarinnar í Delí en hún tekur til starfa um leið og fríverslunar- og efnahagssamstarfssamningur EFTA og Indlands (TEPA) tekur gildi, væntanlega síðar á árinu. Miðstöðinni er ætlað að auðvelda samskipti fyrirtækja, sem vilja eiga viðskipti og fjárfesta á Indlandi, við opinbera aðila og draga úr skriffinnsku.

Shri Piyush Goyal, viðskipta- og iðnaðarráðherra Indlands, sagði við opnun miðstöðvarinnar að samningur Indlands og EFTA-ríkjanna markaði tímamót og undirstrikaði að Indland ætlaði sér stóra hluti í heimsviðskiptum. „Þessi miðstöð mun þjóna hlutverki brúar á milli fyrirtækja beggja hliða og tryggja gegnsæi, traust og snurðulaus viðskipti,“ sagði ráðherrann.

Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, var fulltrúi Íslands við opnunina. Hann sagði að fríverzlunar- og efnahagssamstarfssamningurinn væri mikilvægasti samningur EFTA í áratugi og styrkti efnahagssamstarf Indlands og Evrópuríkja. Hann benti á vaxandi samstarf á sviði endurnýjanlegrar orku, sjávarútvegs og lyfjaiðnaðar.

Í framhaldi af opnunarathöfninni var haldið viðskiptaþing með þátttöku um 100 fyrirtækja, en meðal þátttakenda frá Íslandi var Bala Kamallakharan, formaður Íslensk-indverska viðskiptaráðsins. Þar var meðal annars fjallað um sjávarútveg, skipaflutninga, fjármálaþjónustu, lyfjaiðnað og matvælavinnslu. Goyal ráðherra sagði á þinginu að EFTA-þjónustumiðstöðin myndi stuðla að góðum samskiptum fyrirtækja og stjórnvalda. Indversk stjórnvöld myndu vinna þétt með EFTA-ríkjunum að því að raungera möguleika fríverslunar- og efnahagssamstarfssamningsins.

Scroll to Top