Um Íslensk-indverska viðskiptaráðið
ÍIV samanstendur af einstaklingum og fyrirtækjum með víðtæka reynslu af viðskiptum við Indland. Við höfum unnið með fjölmörgum fyrirtækjum í báðum löndum, aðstoðað þau við að finna ný tækifæri og auka viðskipti.

Íslensk-indverska viðskiptaráðið var stofnað að frumkvæði Félags íslenskra stórkaupmanna, sem nú heitir Félag atvinnurekenda, og ræðismanns Indlands á Íslandi hinn 4. maí 2005.
Vertu hluti af vaxandi tengslaneti íslenskra og indverskra fyrirtækja
Um starfsemina
Íslensk-indverska viðskiptaráðið var stofnað að frumkvæði Félags íslenskra stórkaupmanna, sem nú heitir Félag atvinnurekenda, og ræðismanns Indlands á Íslandi hinn 4. maí 2005.
Stjórn ÍIV:
Bala Kamallakharan, Startup Iceland, formaður
Andrés Vilhjálmsson, Kjarnafæði
Anna Hedvig Þorsteinsdóttir, Lýsi
Framkvæmdastjóri: Ólafur Stephensen
Lög ÍIV
Samstarfssamningur ÍIV og IIBA
ÍIV hefur gert samstarfssamning við Indo Icelandic Business Association (IIBA) í Indlandi, en það eru samtök fyrirtækja sem hafa áhuga á viðskiptum við Ísland. Þá hefur Félag atvinnurekenda, sem rekur ÍIV, samstarfssamning við ASSOCHAM, Associated Chambers of Commerce and Industry of India. ASSOCHAM er regnhlífarsamtök viðskiptaráða og atvinnurekendasamtaka á Indlandi.
Samstarfssamningur FA og utanríkisráðuneytisins
Samkvæmt samstarfssamningi FA og utanríkisráðuneytisins tekur formaður ráðsins þátt í árlegum fundi viðskiptaráða með utanríkisráðherra. Þá á stjórn ráðsins árlegan fund með sendiherra Íslands á Indlandi.
Ráðstefnur og fundir
ÍIV hefur staðið fyrir fjölda funda og ráðstefna um viðskipti Íslands og Indlands, tekið á móti viðskiptasendinefndum og skipulagt fyrirtækjastefnumót.
Viðskiptaþing
Árin 2019 og 2023 voru skipulögð fjölmenn indversk-íslensk viðskiptaþing, það fyrra í tilefni af opinberri heimsókn Ram Nath Kovind forseta Indlands hingað til lands og það síðara er fjölmenn viðskiptasendinefnd IIBA kom hingað til lands.
Fríverslunarsamningur EFTA og Indlands
Fríverslunarsamningur EFTA og Indlands sem var undirritaður í mars 2024 mun efla viðskiptatengsl Íslands og Indlands til muna. ÍIV stóð fyrir kynningu á samningnum fljótlega eftir undirritun hans. Ráðið hyggst áfram vinna að kynningu á samningnum og þeim tækifærum sem í honum felast og mun vinna með íslenskum stjórnvöldum að því að framkvæmd hans gangi sem greiðast fyrir sig.