Vefkynning á bláa hagkerfinu og matvælaiðnaði á Indlandi 18. mars

EFTA, Fríverslunarsamtök Evrópu, og Invest india gangast fyrir vefkynningu á matvælaiðnaði og bláa hagkerfinu á Indlandi miðvikudaginn 18. mars kl. 9 árdegis að íslenskum tíma. Yfirskrift viðburðarins á ensku er „India’s Food Processing and Blue Economy: Growth Opportunities Across the Value Chain.“

Vefkynningin er sérstaklega ætluð fyrirtækjum í EFTA-ríkjunum sem hafa áhuga á fjárfestingum á Indlandi. Viðskipta- og efnahagssamstarfssamningur EFTA og Indlands, TEPA, auðveldar verulega fjárfestingar fyrirtækja frá aðildarríkjum EFTA í indversku atvinnulífi. Í kynningunni verður leitast við að varpa ljósi á umfang, vöxt og fjárfestingarumhverfi umræddra geira á Indlandi.

Skráning er nauðsynleg á hlekknum hér að neðan. Neðar á síðunni eru frekari upplýsingar um umfjöllunarefnin á kynningunni.

Skráning á viðburðinn

Scroll to Top