Sendiráð Indlands í Reykjavík efnir til vinnustofu um tækifæri til samstarfs íslenskra og indverskra fyrirtækja í orkugeiranum 13. febrúar næstkomandi. Vinnustofan verður haldin í Vox Club á Hótel Hilton Reykjavík Nordica og stendur kl. 11-12.30.
Indversk stjórnvöld hafa sett sér metnaðarfull markmið um nýtingu endurnýjanlegrar orku. Mikið átak hefur verið gert í byggingu sólar- og vindorkuvera, en nú er stefnan einnig tekin á nýtingu jarðvarma og kolefnisgeymslu, en í þeim efnum eru íslensk fyrirtæki í fremstu röð í heiminum. Í vinnustofunni verður fjallað um fjárfestingar- og samstarfsmöguleika í indverska orkugeiranum.
Skráning á hlekknum hér að neðan eða með því að skanna qr-kóðann þar fyrir neðan.




