Vefkynning á fjárfestingartækifærum í endurnýjanlegri orku

EFTA gengst fyrir vefkynningu á fjárfestingartækifærum í tengslum við uppbyggingu endurnýjanlegrar orku á Indlandi. Kynningin fer fram 15. apríl kl. 9 að íslenskum tíma. Hlekkur til skráningar er hér að neðan.

Á kynningunni verður sjónum beint að endurnýjanlegri orku og fjárfestinga- og markaðsumhverfinu í Indlandi þegar kemur að þessum geira. Farið verður yfir helstu tækifæri fyrir EFTA-ríkin hvað varðar rannsóknar- og þróunarstarf, orkuvinnslu og fjárfestingar í framleiðslu. Skoðað verður hvaða nýju leiðir viðskipta- og efnahagssamstarfssamningur Indlands og EFTA (TEPA) opnar fyrir fyrirtæki frá EFTA-ríkjunum á þessum markaði.

Skráning á kynninguna

Nánari upplýsingar:

Scroll to Top