Aðalfundur ÍIV 26. maí

Við minnum á aðalfund Íslensk-indverska viðskiptaráðsins, sem fer fram 26. maí kl. 11.15 á Teams og hefur þegar verið boðaður með tölvupósti. Hægt er að skrá sig á fundinn hér að neðan. Skráðir félagsmenn fá sendan hlekk til þátttöku.

Dagskráin er eftirfarandi skv. lögum ráðsins: 

1. Skýrsla stjórnar 

2. Ársreikningar og skýrsla skoðunarmanns 

3. Kjör stjórnar til tveggja ára

4. Val skoðunarmanns 

5. Ákvörðun félagsgjalds

7. Tillögur að lagabreytingum, ef einhverjar eru. Þurfa að berast stjórn í síðasta lagi viku fyrir fund.

8. Önnur mál

Auglýst hefur verið eftir framboðum til stjórnar ráðsins. Samkvæmt lögum ráðsins eru þrír menn kjörnir í stjórn, til tveggja ára í senn. Stjórnin skiptir með sér verkum eftir á og velur formann og varaformann. Fjögur framboð bárust, frá þeim Andrési Vilhjálmssyni, Önnu Hedvig Þorsteinsdóttur, Bala Kamallakharan og Chandriku Gunnarsson. Kynning á frambjóðendum er í skjalinu hér að neðan.

This field is required.
This field is required.

Scroll to Top