Aðalfundur ÍIV 26. maí

Við minnum á aðalfund Íslensk-indverska viðskiptaráðsins, sem fer fram 26. maí kl. 11.15 á Teams og hefur þegar verið boðaður með tölvupósti. Hægt er að skrá sig á fundinn hér að neðan. Skráðir félagsmenn fá sendan hlekk til þátttöku.

Dagskráin er eftirfarandi skv. lögum ráðsins: 

1. Skýrsla stjórnar 

2. Ársreikningar og skýrsla skoðunarmanns 

3. Kjör stjórnar til tveggja ára

4. Val skoðunarmanns 

5. Ákvörðun félagsgjalds

7. Tillögur að lagabreytingum, ef einhverjar eru. Þurfa að berast stjórn í síðasta lagi viku fyrir fund.

8. Önnur mál

Auglýst hefur verið eftir framboðum til stjórnar ráðsins. Núverandi stjórnarmenn, þau Bala Kamallakharan, formaður, Andrés Vilhjálmsson hjá Kjarnafæði og Anna Hedvig Þorsteinsdóttir hjá Lýsi, gefa öll kost á sér til endurkjörs.

Scroll to Top