Fríverslunarsamtök Evrópu, EFTA, efna til vefkynningar um tækifæri á indverska lækningatækjamarkaðnum, fyrir fyrirtæki í EFTA-ríkjunum miðvikudaginn 20. maí. Kynningin verður haldin kl. 9 að íslenskum tíma og er hlekkur til skráningar hér að neðan.

Á kynningunni verður farið yfir þann markaðsaðgang, sem TEPA-samningurinn hefur í för með sér, og þau tækifæri sem fyrirtæki í EFTA-ríkjunum hafa til fjárfestinga á indverska lækningatækjamarkaðnum og til að taka þátt í rannsóknum og þróun.
Nánari upplýsingar:


