Sendiráð Íslands í Nýju Delí hefur birt nýja greiningu alþjóðlega ráðgjafarfyrirtækisins T&A Consulting á tækifærum íslenskra upplýsingatækni- og samskiptafyrirtækja á Indlandsmarkaði, eftir að viðskipta- og efnahagssamstarfssamningur EFTA og Indlands (TEPA) gekk í gildi.
Í greiningunni er bæði farið yfir markaðsumhverfið á Indlandi og styrkleika íslenskra fyrirtækja í greininni, meðal annars á sviði gervigreindar, gagnavera og heilbrigðistækni. „Metnaðarfull áform Indlands um stafræna umbreytingu munu kalla á verulegar og viðvarandi fjárfestingar í hugbúnaðarþróun, upplýsingatækniráðgjöf, gagnavinnslu, gervigreind og samþættingu upplýsingakerfa – á sviðum þar sem íslensk fyrirtæki búa yfir vaxandi sérþekkingu og samkeppnishæfni,“ segir meðal annars í greiningunni.
Hægt er að lesa skjalið hér að neðan.



