Chandrika Gunnarsson, stofnandi og framkvæmdastjóri Austur-Indíafélagsins og Hraðlestarinnar, er nýr formaður Íslensk-indverska viðskiptaráðsins. Ný stjórn ráðsins var kjörin á aðalfundi 26. maí og skipti með sér verkum á stjórnarfundi í gær. Bala Kamallakharan, stofnandi Iceland Venture Studio og Startup Iceland, sem verið hefur formaður ráðsins frá 2013, verður varaformaður. Meðstjórnandi er Anna Hedvig Þorsteinsdóttir, sölustjóri hjá Lýsi.
Chandrika Gunnarsson er vel þekktur frumkvöðull á Íslandi og með víðtæk tengsl í indversku viðskiptalífi sömuleiðis. Hún stofnaði Austur-Indíafélagið á Hverfisgötu 1994 og hefur rekið það allar götur síðan. Fjórir staðir eru reknir undir merkjum Hraðlestarinnar, sem var stofnuð 2003. Chandrika hefur einnig látið til sín taka í húsgagnaverslun. Hún hefur verið óþreytandi að efla tengsl Íslands og Indlands og aðstoða fyrirtæki frá báðum ríkjum að koma á viðskiptum. Þá rekur hún umfangsmikið mannúðar- og menntastarf á Indlandi.
Íslensk-indverska viðskiptaráðið er hýst og rekið af Félagi atvinnurekenda. Ráðið hefur starfað frá 2005 en undanfarin misseri hefur starfsemi þess tekið mikinn kipp eftir að viðskipta- og efnahagssamstarfssamningur EFTA og Indlands (TEPA) var undirritaður og tók gildi í október í fyrra. Félagsmönnum hefur fjölgað um meira en helming. ÍIV leggur sérstaka áherslu á að kynna TEPA-samninginn og tækifæri hans, meðal annars á vefnum isin.is. Félagsmenn fá auk þess sent mánaðarlegt tölvupóstfréttabréf um viðskipti Íslands og Indlands.
Á myndinni er ný stjórn ÍIV. Frá vinstri: Anna Hedvig Þorsteinsdóttir, Chandrika Gunnarsson og Bala Kamallakharan.



