Fyrirtæki velkomin á leiðtogafund EFTA og Indlands

Annar leiðtogafundur EFTA og Indlands (EFTA-India Prosperity Summit), verður haldinn í Nýju Delí 7. október, eins og við höfum áður greint frá. Tilefnið er ársafmæli gildistöku viðskipta- og efnahagssamstarfssamnings Indlands og EFTA, sem verið hefur í gildi frá því 1. október í fyrra. Fundurinn er hugsaður sem mikilvægur vettvangur til að leiða saman stjórnmála- og embættismenn, fyrirtæki og atvinnulíf á Indlandi og í EFTA-ríkjunum, með það að markmiði að kanna tækifæri til aukinna viðskipta, fjárfestinga og samstarfs fyrirtækja. Íslensk fyrirtæki eru velkomin til fundarins.

Fundurinn mun jafnframt skapa tækifæri til að ræða þá möguleika sem felast í TEPA-samningnum og stuðla að auknu samstarfi á sviðum á borð við viðskipti, fjárfestingar, tæknisamstarf, nýsköpun og markaðsaðgang.

Chandrika Gunnarsson

Chandrika Gunnarsson, formaður Íslensk-indverska viðskiptaráðsins, mun sækja fundinn. Stefnt er að því að á hliðarviðburði fundarins verði ritað undir samstarfsyfirlýsingu ÍIV og CII (Confederation of Indian Industries).

Piyush Goyal, viðskipta- og iðnaðarráðherra Indlands, verður gestgjafi fundarins. Á dagskrá verða hringborðsumræður um einstakar atvinnugreinar og kynningar ráðuneyta indversku ríkisstjórnarinnar á viðskipta- og fjárfestingartækifærum á Indlandi. Þátttakendum gefst þannig kostur á að eiga beint samtal við lykilaðila úr stjórnvöldum og atvinnulífi. Ekki hefur verið staðfest hver verður fulltrúi íslenskra stjórnvalda á fundinum en gera má ráð fyrir að það verði einhver af ráðherrum ríkisstjórnarinnar.

Að fundinum standa Invest India og atvinnurekendasamtökin CII, FICCI (The Federation of Indian Chambers of Commerce & Industry), og ASSOCHAM. Félag atvinnurekenda, sem rekur Íslensk-indverska viðskiptaráðið, er með samstarfssamning við síðastnefndu samtökin, en þau eru regnhlífarsamtök viðskiptaráða og atvinnurekendasamtaka á Indlandi. Alls eiga um 300 samtök aðild að ASSOCHAM og þjóna þau samtals rúmlega 400 þúsund aðildarfyrirtækjum.

Íslensk fyrirtæki, sem áhuga hafa á fundinum, geta skráð sig á vef ASSOCHAM, sjá hlekk hér að neðan.

Skráning á vef ASSOCHAM

Scroll to Top