Bala stýrði umræðum um tæknisamstarf Indlands og Norðurlandanna

Bala Kamallakharan, varaformaður Íslensk-indverska viðskiptaráðsins, tók þátt í ráðstefnunni Nordic India Dialogue 2026, sem fram fór í Nýju-Delí 10.–11. september. Þar komu saman fulltrúar stjórnvalda, atvinnulífs, háskóla, rannsóknastofnana og stefnumótandi stofnana frá Indlandi og Norðurlöndunum.

Ráðstefnan var haldin á Claridges-hótelinu og skipulögð af Ananta Centre í samstarfi við Alþjóðamálastofnun Svíþjóðar, Alþjóðamálastofnun Finnlands, Alþjóðamálastofnun Noregs, Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands og Tækniháskóla Danmerkur (DTU). Ráðstefnan er árlegur viðburður og var haldin hér á landi í fyrra.

Fjallað var um fjölbreytt málefni sem varða samskipti Indlands og Norðurlandanna, meðal annars breytingar á alþjóðlegri skipan, norðurslóðir og Indó-Kyrrahafssvæðið, viðskipti og markaðsaðgang, hreyfanleika sérfræðinga, landupplýsingagreind og tæknisamstarf.

Indland og Norðurlöndin bæta hvert annað upp
Bala stýrði lokaumræðum ráðstefnunnar, „India-Nordic Tech Ecosystems“, þar sem rætt var um hvernig Indland og Norðurlöndin gætu aukið samstarf um stafræna innviði, gervigreind, gagnastjórnun, fjarskipti, nýsköpun og tæknistefnu.

Aðalræðu málstofunnar flutti Saurabh Vijay, forstjóri UIDAI og IndiaAI Mission. Í pallborði sátu auk hans Carsten Orth Gaarn-Larsen frá DTU, Rajan Navani frá JetSynthesys, Vibha Mehra frá Nokia India og Vijeta Arya frá Ericsson India.

Bala gerði jafnframt grein fyrir niðurstöðum vinnuhóps um tækni og traust (Tech and Trust Working Group). Ein helsta niðurstaða hópsins er að styrkleikar Indlands og Norðurlandanna bæti hver annan vel upp. Indland býr yfir stærð markaðar, mannauði, framleiðslugetu og umfangsmiklum stafrænum markaði, en Norðurlöndin hafa sterka stöðu á sviði sérhæfðrar tækni, rannsókna, iðnaðarþekkingar og traustra innviða.

Í niðurstöðum vinnuhópsins eru fjarskipti og 6G-tækni, gervigreind, græn tækni, orkumál, mannauður, rannsóknir, heilbrigðistækni og bláa hagkerfið nefnd sem svið þar sem veruleg tækifæri eru til aukins samstarfs. Ísland hefur þar sérstaklega mikið fram að færa á sviði jarðhita, sjávarútvegs, bláa hagkerfisins og haftengdrar tækni.

Vettvangur fyrir frumkvöðla og fjárfesta
Bala vinnur nú að hugmynd um að koma á öflugri vettvangi fyrir frumkvöðla og fjárfesta á Indlandi og Norðurlöndunum, meðal annars með hliðsjón af reynslunni af Startup Iceland. Markmiðið væri annars vegar að auðvelda norrænum sprotafyrirtækjum að nýta Indland sem markað og vettvang til vaxtar og hins vegar að gera indverskum frumkvöðlum kleift að nýta norræn nýsköpunarumhverfi sem stökkpall inn á evrópska og alþjóðlega markaði.

Hugmyndin fellur vel að einni af tillögum vinnuhópsins, um að komið verði á fót norræn-indverskum samstarfsvettvangi fyrir sprota og nýsköpun (Nordic-India Start-up and Innovation Corridor). Slíkur vettvangur myndi meðal annars tengja betur saman fjárfestingarsjóði og nýsköpunarumhverfi Indlands og Norðurlandanna, stuðla að samskiptum frumkvöðla og bjóða upp á stuðning og hagnýta ráðgjöf við markaðssókn fyrirtækja.

Aðrir fulltrúar Íslands á ráðstefnunni voru Benedikt Höskuldsson, sendiherra í Nýju Delí, Tinna Sveinsdóttir varamaður sendiherra, Auður Birna Stefánsdóttir frá Alþjóðamálastofnun HÍ og Dagvinnur Sveinbjörnsson, stofnandi og formaður Climate Research Foundation. Hér að neðan eru myndir frá ráðstefnunni.

Scroll to Top