Íslensk-indverska viðskiptaráðið og CII gera með sér samstarfssamkomulag

Íslensk-indverska viðskiptaráðið (ÍIV) og Confederation of Indian Industry (CII), ein stærstu og áhrifamestu atvinnulífssamtök Indlands, hafa undirritað samstarfssamkomulag sem miðar að því að efla viðskipti, fjárfestingar og tengsl fyrirtækja á Íslandi og Indlandi.

Samkvæmt samkomulaginu munu samtökin meðal annars miðla upplýsingum um viðskiptatækifæri og þróun atvinnulífsins í löndunum tveimur, stuðla að gagnkvæmum fjárfestingum og samstarfi fyrirtækja og greiða fyrir heimsóknum viðskiptasendinefnda. Þá munu þau vinna saman að ráðstefnum, málstofum, viðskiptasýningum og öðrum viðburðum sem geta stuðlað að auknum viðskiptum.

Sérstök áhersla er lögð á að efla tengsl lítilla og meðalstórra fyrirtækja í löndunum tveimur.

Samkomulagið var undirritað við athöfn í Sendiráði Íslands í Nýju Delí í síðustu viku af Chandriku Gunnarsson, formanni Íslensk-indverska viðskiptaráðsins, og D. Thulasiraj, yfirmanni Evrópudeildar CII. Viðstaddir voru Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, og Benedikt Höskuldsson, sendiherra Íslands í Nýju Delí. Jóhann Páll sótti daginn eftir leiðtogafund EFTA og Indlands ásamt fulltrúum ýmissa íslenskra fyrirtækja.

Scroll to Top