Áhersla á orku- og loftslagsmál á leiðtogafundi Indlands og EFTA

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, tók þátt í öðrum leiðtogafundi Indlands og EFTA (India-EFTA Prosperity Summi) í Nýju-Delí 7. október. Ráðstefnan var haldin í tengslum við eins árs afmæli gildistöku fríverslunar- og efnahagssamstarfssamnings EFTA-ríkjanna og Indlands (TEPA).

Með ráðherranum í för voru fulltrúar íslenskra fyrirtækja á sviði kolefnisföngunar, kolefnisnýtingar og -geymslu, jarðhita og heilbrigðistækni, þeirra á meðal Carbfix, Carbon Recycling International, Carbon Iceland, Geotropy, TechonVerkis og Össurar.

Íslendingar höfðu ásamt indverskum fulltrúum umsjón með hringborðsumræðum um hreina orku og loftslagslausnir. Kristinn Ingi Lárusson, framkvæmdastjóri viðskipta og aðstoðarforstjóri Carbfix, stýrði umræðunum ásamt Ashish Khanna, forstjóra Adani Green Energy. Þar var meðal annars fjallað um endurnýjanlega orku, grænt vetni, kolefnisföngun, jarðhitatækni og fjármögnun verkefna, með áherslu á að þróa viðskiptatækifæri á grundvelli tæknisamstarfs ríkjanna.

Jóhann Páll átti jafnframt fund með Jitin Prasada, aðstoðarráðherra viðskipta- og iðnaðarmála á Indlandi, þar sem rætt var um aukið samstarf ríkjanna á sviði viðskipta, hreinnar orku og sjálfbærrar þróunar. Í ávarpi sínu á ráðstefnunni lagði ráðherrann áherslu á tækifærin sem fælust í að sameina sérhæfða íslenska þekkingu og tækni við framleiðslugetu og mannauð Indlands.

Scroll to Top