Fulltrúar um 20 fyrirtækja sóttu viðburð um viðskipti Íslands og Indlands og TEPA-samninginn, sem sendiráð Indlands og Íslensk-indverska viðskiptaráðið efndu til í gær.
R. Ravindra, sendiherra Indlands, flutti erindi um áhrif viðskipta- og efnahagssamstarfssamnings Indlands og EFTA (TEPA) á viðskipti ríkjanna á því ári, sem hann hefur verið í gildi. Chandrika Gunnarsson, formaður ÍIV, ræddi starf ráðsins og hvernig það gæti aðstoðað félagsmenn við að afla viðskiptatengsla. Ingólfur Friðriksson, skrifstofustjóri viðskiptaskrifstofu utanríkisráðuneytisins ræddi viðskipti ríkjanna og Þórdís Jóhanna Lareau, viðskiptafulltrúi indverska sendiráðsins, fjallaði um þá aðstoð sem sendiráðið gæti veitt fyrirtækjum.
Að inngangserindum loknum nutu gestir indverskra veitinga og skiptust á skoðunum og upplýsingum. Hér að neðan eru glærur Ravindra sendiherra og myndir frá viðburðinum.




















