Nokkuð hefur verið fjallað hér á vefnum um útflutningstækifæri fyrir íslensk fyrirtæki á grundvelli fríverslunarsamnings EFTA-ríkjanna og Indlands. Vert er þó að hafa í huga að samningurinn felur einnig í sér niðurfellingu tolla á vörum frá Indlandi. Fyrir almenning og fyrirtæki á Íslandi skapar samningurinn því tækifæri til að fjölga birgjum, auka vöruúrval og ná hagkvæmari innkaupum.
Ísland er eftir sem áður í hópi ríkja þar sem tollar eru lægstir. Allar iðnaðarvörur og langflestar tegundir matvæla bera engan almennan toll til Íslands. Ívilnanir sem samningurinn kveður á fyrir íslensk fyrirtæki ná því fyrst og fremst til matvæla.
Ýmsar tegundir grænmetis
Varðandi grænmetisvörur kveður samningurinn á um niðurfellingar tolla á smátómötum, hvítlauk, salati, gúrkum, aspas, eggaldini, paprikum og spínati. Sama gildir um sætar kartöflur og ýmsa matsveppi.
Tollfrelsið nær einnig til frosinna bauna, spínats, maíss, papriku, lauks og grænmetisblandna. Þurrkað grænmeti og þurrkaðar belgfræjur, svo sem linsubaunir og kjúklingabaunir, njóta sömuleiðis tollfrelsis. Þessi fríðindi nýtast bæði hinum almenna neytanda sem og fyrirtækjum í veitingarekstri og matvælavinnslu.
Hér er þó mikilvægt að greina á milli vörutegunda og vinnslustigs. Ferskur laukur, blómkál, gulrætur og venjulegir ræktunarsveppir njóta til dæmis ekki tollfríðinda samkvæmt samningnum. Frosinn laukur og ýmist þurrkað grænmeti njóta hins vegar tollfrelsis.
Jógúrtvörur
Magntollur á ýmsum bragðbættum jógúrtvörum lækkar um 8 krónur, úr 61 kr./kg í 53 kr. og er þannig sambærilegur við tollakjör gagnvart ríkjum Evrópusambandsins. Áfram leggst á vörurnar 30% verðtollur. Engar tollaívilnanir eru hins vegar veittar á óbragðbættri jógúrt.
Sjávarafurðir til sölu og frekari vinnslu
Tollfrelsi nær til fisks, krabbadýra, lindýra og annarra vatnahryggleysingja í 3. kafla tollskrár. Þar undir falla meðal annars rækjur, krabbar, smokkfiskur og fiskflök. Einnig njóta unnar eða niðursoðnar fiskafurðir tollfrelsis, svo sem niðursoðinn túnfiskur og unnar rækjuafurðir.
Þarna geta legið tækifæri fyrir innflytjendur og dreifingaraðila sem þjónusta verslanir og veitingastaði, auk fyrirtækja sem vilja afla hráefnis til frekari vinnslu hér á landi.
Sælgæti og súkkulaði
Tollar falla niður á sælgæti á borð við tyggigúmmí, karamellur, lakkrís og brjóstsykur. Þá eru veittar tollaívilnanir fyrir hráefni til súkkulaðigerðar, á borð við sykrað kakóduft og kakóblöndur.
Blóm
Á sviði blóma og garðyrkju nær tollfrelsið meðal annars til blómlauka og hnýða í dvala, svo sem túlípana, hýasinta, páskalilja og gladíóla. Sveppagró og sveppaþræðir til ræktunar njóta einnig tollfrelsis. Hér ber að hafa í huga að viðkomandi vörur bera sem stendur ekki almennan toll til Íslands. Í samningnum skuldbindur Íslands sig hins vegar til þess að viðhalda því stigi til frambúðar.
Grundvöllur frekara samstarfs
Hagur neytenda af fríverslunarsamningum felst ekki eingöngu í niðurfellingum tolla heldur einnig auknum samskiptum og samstarfi samningsaðilanna þar sem við á. Kynningarviðburðir, skilvirkari tollafgreiðslur, einfaldari vottunarferlar og sameiginlegur vettvangur samningsaðila til að ræða og leysa úr þeim ágreiningsefnum sem upp koma skapa hvetjandi umhverfi til frekari vöruviðskipta.
Hér skal minnt á að fjölmargar vörur sem tengjast indverskri matargerð njóta tollfrelsis. Þar má nefna te, kaffi, basmati-hrísgrjón og krydd á borð við pipar, kanil, negul, kardimommur, kóríanderfræ, broddkúmen, engifer og túrmerik.
Einnig ávextir og hnetur á borð við mangó, guava og kasjúhnetur. Þá má nefna náttúrulegt hunang, sojasósu, tómatsósur og fljótandi mangó-chutney. TEPA samningurinn gefur því tilefni til að kanna fjölbreyttara vöruúrval og nýja birgja við innflutning á matvöru fyrir neytendur og fyrirtæki.
Mikilvægt að kanna tollskrá og önnur innflutningsskilyrði
Að endingu skal á það minnt að fyrirtæki sem vilja nýta samninginn þurfa að kanna viðeigandi tollskrárnúmer, upprunareglur og kröfur um upprunasönnun. Tollfrelsi kemur ekki í stað annarra innflutningsskilyrða, svo sem heilbrigðis- og plöntuheilbrigðiskrafna og felur ekki í sér undanþágu frá virðisaukaskatti eða öðrum opinberum gjöldum sem kunna að eiga við.



