Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, verður fulltrúi íslenskra stjórnvalda á leiðtogafundi EFTA og Indlands (EFTA-India Prosperity Summit) í Nýju Delí 7. október næstkomandi. Fundurinn er haldinn í tilefni af ársafmæli gildistöku viðskipta- og efnahagssamstarfssamnings Indlands og EFTA (TEPA), sem verið hefur í gildi frá því 1. október í fyrra.
Eins og við höfum áður greint frá, eru fyrirtæki í EFTA-ríkjunum hvött til að sækja fundinn. Honum er ætlað að skapa tækifæri til að ræða þá möguleika sem felast í TEPA-samningnum og stuðla að auknu samstarfi á sviðum á borð við viðskipti, fjárfestingar, tæknisamstarf, nýsköpun og markaðsaðgang. Orku- og loftslagsmál eru sérstakt áherslumál í samskiptum Íslands og Indlands og eitt af áherslumálum leiðtogafundarins.
Jóhann Páll mun meðal annars eiga viðræður við Piyush Goyal, viðskipta- og iðnaðarráðherra Indlands, sem er gestgjafi á fundinum.
Að fundinum standa Invest India og atvinnurekendasamtökin CII (Confederation of Indian Industries), FICCI (The Federation of Indian Chambers of Commerce & Industry), og ASSOCHAM (The Associated Chambers of Commerce & Industry of India). Félag atvinnurekenda, sem rekur Íslensk-indverska viðskiptaráðið, er með samstarfssamning við síðastnefndu samtökin, en þau eru regnhlífarsamtök viðskiptaráða og atvinnurekendasamtaka á Indlandi. Alls eiga um 300 samtök aðild að ASSOCHAM og þjóna þau samtals rúmlega 400 þúsund aðildarfyrirtækjum.
Íslensk fyrirtæki, sem áhuga hafa á fundinum, geta skráð sig á vef ASSOCHAM, sjá hlekk hér að neðan.
Chandrika Gunnarsson, formaður ÍIV, mun sækja fundinn. Í tengslum við hann, á viðburði í sendiráði Íslands í Nýju Delí hinn 6. október, verður skrifað undir samstarfsyfirlýsingu ÍIV og CII.



